Hér er mynd frá ferð helgarinar þegar farið var á Búrfell í Grímsnesi eins og fellið er oftast kallað. Þar uppi er vatn sem sagt er að sé veiði í og einnig nátengt Kerinu sem er þarna í Grímsnesinu. Eitthvað hefur verið minnst á Nykur í því sambandi.
Takk takk Gestur og Svava Björk þið eruð yndislega dugleg. Framtaksemi er ykkur í blóð borin.
með kveðjum
Jóhann Úlfarsson
forseti GÖIG.
Monday, September 30, 2013
Thursday, September 19, 2013
Hittingur laugardaginn 28 september klukkan 10.00 - litlu Kaffistofunni á Sandskeiði.
Fellin heilla í september
Kæru göngufélagar nú er
komið að næstu fellaferð
Búrfell í Grímsnesi varð
fyrir valinu að þessu sinni.
Búrfell í Grímsnesi er
forn gígur með vatni í sem myndast hefur við þeytigos.
Þjóðsögur herma að göng séu milli gígsins á
Búrfellsfjalli og Kersins í Grímsnesi
og þar þar búi Nykur, en það er grár hestur í sem hófarnir
og eyrun snúa öfugt á.
Útsýnið af Búrfelli er
frábært
Maður sameinar Þingvallavatn, Sogið, Ingólfsfjall,
Hengilinn , Botnssúlur, Skjaldbreið,
Lyngdalsheiði, Laugavatn svo ekki sé minnst á Heklu,
Tindfjöll, Þríhyrning og Eyjafjallajökul.
Það er ekki hægt að biðja um meira eftir:
Aðeins 430 m hækkun
Göngulengd um 7 km.
Göngutíma um 4. Klukkustundir og eitthvað rúmlega
með smá kaffi stoppi
Það er því bara að leggja í hann, koma og vera með.
Sjá göngukort.
Við höfum ákveðið að hafa hitting á litlu
Kaffistofunni Kl 10
Klukkan 10.10 höldum síðan þar sem við hefjum
gönguna.
Sem er við línuveginn skammt
frá túnfæti Búrfellsbæjarinns.
Sjáumst á
laugardaginn 28.09 n.k. í litlu
Kaffistofunni kl. 10.00
Með göngukveðju
Gestur fararstjóri og Svava
Björk ritari GÖIG
hér sjáið þið Nykur og lýsingu á honum.
Meðfylgjandi eru myndir
frá fellagöngunni okkar frá því í ágúst
Meðalfell á menningarnótt
laugardaginn 24.08
Það var fámennur en góður hópur sem skellti sér úr
suddanum í Reykjavík
Í góða verðrið á
Miðfell í Kjós – Sjón er sögu ríkari.
Svona tók fellið á móti okkur – Ekki til ský og engin
úrkoma – Veðrið hvað.
Það skal tekið fram að þessi mynd er tekin úr bílnum á
ferð.
Toppnum náð - Tími til að næra sig.
Ekki hægt annað en að setjast niður og horfa á dýrðina –
Þvílík sveit
Glæsilegt útsýni af ekki hærra felli – Maður vill helst ekki fara aftur
niður.
Kærar þakkir fyrir okkur Gestur farastjóri og Svava
Björk ritari GÖIG og ljósmyndarinn
Subscribe to:
Posts (Atom)